Forsíðumynd klúbbsins er saumuð af Hrönn Ingvars og er vinningsmyndin í Quaker Leyni SAL-inu sem að var hér í klúbbnum.
Sælar stúlkur.
Þessi klúbbur minn er fyrir okkur sem að eru aðallega í krosssaum. Ég er sjálf alveg húkkt og vil gera ýmsa hluti tengda kross sauminum. Flestar ykkar kannist við Round Robin sem að ég setti af stað í hinum klúbbnum. Hugmyndin er að setja fleiri svoleiðis af stað og ýmislegt fleira skemmtilegt :o)
Auðvitað má vera annað föndur með, og þið megið tala um það sem þið viljið, en ég ætla ekki að vera með neinar uppákomur tengdar öðru föndri af því að ég kann hreinlega ekki nóg vel á það. Ef einhver annar er með einhverjar hugmyndir, endilega hafa samband við mig! Ég er opin fyrir öllu :o)